Á mánudaginn 24. sept fór fram hrúta- og lambadómar í Egilsstaðakoti.
Dæmdar voru 103 gimbra að meðal þyngd 38,3kg 26,9mm bakvöðva, 2mm fitu og 4,3 í lögun 8,4 fyrir frampart, 17,2 í læri og 7,9 fyrir ull.hæðst dæmdist gimbur númer 384 undan Hergil sæðingarhrút og Pink 44kg 31mm ómvöðva 2 fitu og 5 lögun 8,5 frp. 18,5 læri og 8 ull.
Dæmdir voru 14 lambhrútar að meðalþyngd 46,5kg með 29,5mm bakvöðva 2,1 í fitu og 4,7 í lögun 8-8,3-8,7-8,5-8,7-17,6-7,8-8-8,1 heildarstig 83,7stig hæðst dæmdist kollóttur hrútur númer 3 undan Stera sæðingarhrút og Veislu 54kg 31mm ómvöðva 3fitu og 5 lögun 8-8,5-8,5-8,5-9-18-8,5-8-8,5 alls 85,5 stig
Dómarnir fara þannig fram að lömbinn eru vigtuð, mældur á þeim bakvöðvinn með ómsjá, mæld er bakvöðva þykt og vitu lagið ofaná hryggnum og dæmd hversu vel vöðvin heldur sér á mælikvarðanum 1-5 og kallast það lögun. Slakur bakvöðvi er eins og gólflisti en góður líkist 2X4″ spítu og er það þá 5 í lögun. Næst er þá mælt legglengd, með því að verið að átta sig á stærð hrútsins æskileg legglengd á lamba sé 104-110 en á veturgömlum hr 110-120. síðan eru hrútar dæmdir eftir farandi:
Haus á mælikvarða 6-8 eðlilegur haus fær 8 en dregið niður ef um galla er að ræða.
Háls og herðar, og brjóst og útlögur, þessa tvo þætti er hort á með vissu samhengi. Frampartur er metin fyrst í heild sinni og síðan skipt niður þannig að hægt sé að lísa sem best hvar kostir og gallar koma fram í bygginguni. haft er til tilsjónar hve feit lambið er. dæmt er á skallanum 6,5-10, 8 er ásætanlegt til ásetnings og 10 er einhvað sem varla sérst.
Bak við stigun á baki er helst horft til ómmælingar og stigun á lögun bakvöðvans einig er bakið þuklað og metið hvernig átak er á því. Lamb sem mælist með 30mm bakvöðva og 1,2mm í fitu 4,5 í lögun gæti verið að fá um 8,5 í bakvöðva og þykir nokkuð gott.
Malir, þá er verið að tala um frá hrygg niður að dindil og má segja að það sé hluti af lærum. Eins og með aðra þætti þarf að huga vel að ekki sé um fitupung að ræða og ofdæmt eftir því. dæmt á kvarð 6,5-10
Læri vafalaust veigamesti þátturinn í ásetnigsvali lamba og er því haft tvöfalt vægi á þeim lið dæmt á skala 14,5-20 og þykir þar vera æskilegt að ná 17 til að vera hæft til ásetnig, 20 er einhvað sem varla sést
Ull Fyrir þennan eiginleika skal helst miðavið að ásetnigur nái 8 þó er minna horft til þessa eiginleika en annara dæmt á skala 6,5 til 10. sjaldan dæmt hærra en 9
Fætur hér er dæmt eins og með haus, hæðst er dæmt 8 og síðan dregið niður eftir göllum ásetningur skal ætíð hafa 8 aðan á umsvifalaust að fara í slátrun
Samræmi er samansafn eiginleiki sem ekki er dæmt í öðrum þáttum en rétt að horfa á þegar val á ásetnigi á sérstað 8 er ásætanlegt lamb gallalaust, dregið er niður ef um stutt, vemdlömb er að ræða en bollöng og gerðamikil lömb fá hærri einkunn
Hæðst geta heildarstig orðið 96 stig en það er líka einhvað sem ekki þekkist hæðst hafa lömb farið í 90 stig og þikir það afbragð algengt er að lömb stigist í 80-85 stig og umfram það eru afbragðsgripir
Gimbrar eru dæmdar í fjórum liðum, frampartur, bak, læri og ull skallin er sá sami og á hrútunum.