Aðalfundur Hrossaræktarfélags Villingaholtshrepps var haldinn í Egilsstaðakoti miðvikudaginn 12. jan sl. Á fundinn mættu 32 félagar og inn í félagið gengu 21 nýir félagar og nærri tvöfaldaðist félagatalið, alls eru því nú 47 í félaginu. Á fundinum voru tekin fyrir almenn fundarsköp. Kossnir voru þeir Atli Geir Jónsson í aðalstjórn, Þórir Haraldsson og Jónas Haraldsson í varastjórn fyrir eru í aðalstjórn þeir Þorsteinn Logi Einarsson og Óðinn Örn Jóhannsson. Einnig voru ný lög félagsins samþykkt. Loks voru önnur mál rædd og bar þar hæðst sameginleg uppskeru hátíð hrossaræktar félaga flóahrepps sem halda á í Félagslundi laugardaginn 15. janúar nk. og er dagskráin eftirhljóðandi:
Stóðhestakynning.
Kristinn Hugason kynnir Ytra-Dalsgerðirs ræktunina.
Verðlaunaveiting félaganna.