Jólakveðja frá Egilsstaðakoti

Heimilisfólkið  í Egilsstaðakoti  óskar gleðilegra jóla og þakkar fyrir góð viðskipti og samverustundir á árinu sem er að líða. Deila á Facebook

Huginn er lang flottastur

Forustusauðurinn Huginn fékk jóla skraut á dögunum. En jólaskrautið er til þess gert að venja hornin til að standa meira út í loftið  og gerir það hann vígalegri. Deila á Facebook

Hvað er skemmtilegra en forvitin lömb?

Lömbinn og kindurnar fóðrast vel og eru alsælar að vera inni í fjárhúsi á meðan úti er veturinn farinn að minna á sig. Helgina 7.-8. nóv. voru klipptar 255 ær, lömb og hrútar. Deila á Facebook

Sala á lambakjöti lokið

Síðustu lömbinn fóru í slátrun í dag þriðjudag og þar með líkur sölu á lambakjöti þetta haustið. Í ár  voru 80 skrokkar seldir beint frá okkur og styður það okkar tilfinningu að Kotalamb sé komið til að vera. Gerðin í ár er 9,91 og 7,27 í fitu sem er bæting síðan í fyrra og meðalvigt 16,94 sem er mikið [...]

Tilboð á akstri á kjöti til Reykjavíkur

Sökum þess hve margir hafa pantað kjöt í Reykjavík úr næstu slátrun verður boðið upp á frían akstur á kjöti ef um 5 skrokka er að ræða á sama stað og pantað fyrir miðvikudagskvöldið 21. október. Einnig viljum við benda á að mjög góðar upplýsingar um geymslu og meðhöndlun lambakjöts eru að finna á heimasíðunni: http://www.lambakjot.is/ [...]

Gamlar myndir úr Kotinu

Búið að skanna nokkrar myndir af Þorsteinni og búskap úr Kotinu inn á myndasíðuna okkar linkurinn er http://picasaweb.google.com/thorsteinn.logi.e/GamlarKotamyndir# Deila á Facebook

Beint frá býli

Nú erum við orðin meðlimir í félaginu; Beint frá býli sem er fyrir bændur sem stunda eða hyggjast stunda sölu afurða sinna beint frá býli sínu. Tilgangurinn með félaginu er að hvetja til heimavinnslu og sölu beint frá bændum. Einnig að vinna að hagsmunum þeirra bænda sem stunda eða hyggjast stunda hverskonar framleiðslu og sölu [...]

Sala á kjöti Gengur vel

Kjötið af lömbunum sem slátrað var 1.okt er uppselt og verður afgreitt á morgunn. Næsta slátrun verður 15. okt. Ég vil minna fólk að pannta tímalega því að kjötið seldist upp í fyrra og miðað við undirtektir býst ég við því sama núna. Deila á Facebook

Eftirsafn, lambadómar og annarri slátrun lokið

Þorsteinn fór í eftirsafn á afréttinum hjá okkur og voru skilaréttirnar  sunnudaginn 27. september og núna vantar okkur aðeins 6 hausa; 1 kind og 5 lömb. Miðvikudaginn 30. sept voru lömbin svo dæmd og kom það ágætlega út . 98 lömb voru dæmd hjá okkur og var meðal bakvöðvi 28 mm 2,8 mm fita og [...]

Réttir og nýjar myndir

Réttað var í Reykjaréttum þann 12.september síðastliðinn og tókst það ljómandi vel. Vel gekk að draga enda margir vaskir hjálparmenn í því og viljum við þakka kærlega fyrir það. Féð var svo keyrt heim á fjórum vögnum og voru rúmlega 600 fjár keyrð heim frá Egilsstaðakoti, Egilsstöðum 2 og Mjósundi. Þeir sem keyrðu vagnana heim [...]