Ein af mörgum ljúffengum uppskriftum sem hægt er að sjá á lambakjot.is

Basil- og hunangshjúpuð lambakóróna með kumminbættum augnbaunum og basilpestói

Basil- og hunangshjúpuð lambakóróna með kumminbættum augnbaunum og basilpestói

Lýsing

Okkar frábæra lambakjöt hentar við ýmis tækifæri og er sannarlega kjörið hráefni í veislumat.  Hér er uppskrift að girnilegum rétti sem sómar sér vel í hvaða veislu sem er.  Höfundur.  Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslumeistari.
Uppskriftin birtist í Gestgjafanum 3. tbl. 2007.

Hráefni

í stuttu máli
600 g lambahryggur með rifjum, fitulaus
2 msk. hunang
2 msk. basil, smátt saxað
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1/3 tsk. salt
1/2 tsk. svartur nýmalaður pipar
2 dl rasp
2 msk. steinselja, smátt söxuð

Leiðbeiningar

Hitið ofninn í 190°C.
Blandið saman hunangi, basil, hvítlauk, salti og pipar og penslið blöndunni á hrygginn.
Blandið saman raspi og steinselju og veltið hryggnum upp úr blöndunni.
Setjið kjötið í ofninn í 4 mín. Takið það þá úr ofninum og látið standa á borðinu í 4 mín.
Setjið kjötið aftur í ofninn í 4 mín.
Endurtakið þannig að kjötið verði allt í allt 12 mín. í ofninum.

Berið fram með augnbaununum, basilpestói og grænmeti.

Leave a Reply

 

 

 

You can use these HTML tags

<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Spam protection by WP Captcha-Free

Ruslpóstvörn: